
Markaðssamskipti
Orð sem hreyfa við fólki.
tiltal er lítil stofa með mikla reynslu. Stefnumótun, hugmynda- og textagerð, sköpunarstjórn og efnisframleiðsla. Allt á einum stað.
Viðskiptavinir
Fyrirtæki og vörumerki sem hafa treyst tiltal
- TM
- Fagkaup
- Betri samgöngur
- Mynstur
- LazyTown
- Heimar
- Gangverk
- Ogilvy
- Nettó
- King Eider
- Gunnarshólmi
- Feed the Viking
- Byko
- Lýsi
- ORA
Þjónusta
Fjögur svið. Ein rödd.
Stefna
Skýr staða, skýr skilaboð og skýr leið þangað. Áður en nokkuð er skrifað er ákveðið hvað á að segja og við hvern.
- Vörumerkjastefna
- Skilaboðakerfi
- Herferðaskipulag
Textagerð
Fyrirsagnir, slagorð, vefir, handrit, greinar. Texti sem er skrifaður til að vera lesinn og muna eftir.
- Auglýsingatexti
- Vefur og UX-texti
- Handrit og ræður
Hugmyndastjórn
Stóra hugmyndin og hvernig hún lifir í öllum miðlum. Stjórn á heildarmyndinni frá fyrstu skissu að lokaútgáfu.
- Herferðahugmyndir
- Sjónræn stefna
- Samstarf við teymi
Efnisframleiðsla
Frá hugmynd í fullbúið efni: myndbönd, myndir, samfélagsmiðlar og allt sem á að fara út, á réttum tíma.
- Myndbönd og hljóð
- Samfélagsmiðlar
- Framleiðslustjórn

„Áhrifaríkt markaðsstarf felst í réttum skilaboðum, á réttum stað til rétts fólks.“

Um Tiltal
Ein manneskja. Enginn misskilningur.
tiltal er rekið af einum reyndum markaðsmanni sem hefur unnið jafnt á auglýsingastofum sem inni í fyrirtækjum, fyrir stór og smá vörumerki, á Íslandi og utan.
Það þýðir að sá sem hlustar á þig er sá sem vinnur verkið. Hugmyndin týnist ekki á leiðinni og reikningurinn inniheldur enga fundi sem þú sast ekki.
Þegar verkefnið kallar á fleiri hendur, ljósmyndara, hönnuði og framleiðendur, er gott net í kringum tiltal sem er kallað inn eftir þörfum.

Hafa samband
